Dalsá og Tungudalsá eru laglegar dragár í Fáskrúðsfirði. Þær eiga upptök sín í tæplega 1.000 metra hæð á heiðunum innaf Fáskrúðsfirði og renna um daliina sitthvorumegin við Suðurfjall.
Dalsáin er stærri áin og liggur nýji þjóðvegurinn úr Fáskrúðsfjarðargöngum meðfram henni að mestu.
Tungudalsáin er hinsvegar í nokkuð ósnortnu og fallega grónu umhverfi og er ekki akfært með henni.
20. Júní – 20. Sept
Veitt frá 07-13 og 15-21.
3 stangir í Dalsá og 2 stangir í Tungudalsá
Fluga, spúnn, maðkur
Höfðum til veiðimanna að sýna hófsemi taka í soðið en sleppa eins miklu og mögulegt er,ganga um með virðingu fyrir náttúrunni,
Ekki er veiðihús við ánna en Tunguholt gistihús stendur rétt við ána.
Heimasæta,bleik og blá,héraeyra,krókurinn,fasantail,o.fl.
Oftast er kominn fiskur við opnun 20. Júní. En mest gengur í hana seinniparts júlí og ágúst.
Söluaðili er Halldór Pétur Ásgeirsson. Sími 477-1130 861-2154
Sá einnig https://dalsa.wordpress.com/